Á hverju ári stendur Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB fyrir margskonar viðburðum, allt frá stórum ráðstefnum til smærri viðburða eins og námskeiða fyrir verkefnisstjóra og kynninga.
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast efni frá nokkrum þeirra fjölmörgu viðburða sem landskrifstofan stendur fyrir.
Fyrir leik, grunn- og framhaldsskóla.
Lesa meira...Námskeið í gerð umsókna um Leonardo MANNASKIPTA- OG SAMSTARFSVERKEFNA verður haldið mánudaginn 9. janúar kl. 13 - 15. Vinsamlegast skráið þátttöku á astridur@hi.is
Lesa meira...Námskeið í gerð umsókna um Leonardo YFIRFÆRSLUVERKEFNI verður haldið fimmtudaginn 5. janúar. Vinsamlegast skráið þátttöku á: astridur@hi.is
Lesa meira...Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra og norrænna samstarfsáætlan þann 12. janúar nk. á Háskólatorgi, Háskóla Íslands frá kl. 15 - 17:30.
Lesa meira...Ráðstefna um gæðamál í starfsmenntun og framhaldsfræðslu var haldin þann 9. desember síðastliðinn. Mikill áhugi var fyrir málefninu en 120 manns tóku þátt. Kynnt voru góð dæmi um gæðastarf íslenskra fræðsluaðila og evrópsk verkefni á sviði gæðamála sem unnin hafa verið af íslenskum aðilum. Norskur sérfræðingur í gæðakerfum kynnti evrópsk verkfæri sem þróuð hafa verið til að efla starfsmenntun og framhaldsfræðslu í Evrópu og mikilvægi gæðastarfs í því samhengi. Í lokin ræddu þátttakendur framtíðarsýn og næstu skref í gæðamálum á Íslandi.
Lesa meira...Þann 2.-5. nóvember 2011 hélt landskrifstofan vel heppnaða Comenius Region tengslaráðstefnu. Fjölmargir héldu áhugaverð erindi og hafa þau verið sett inn á heimsíðu ráðstefnunar.
- Heimasíða: Comenius Region Contact Seminar
Menntakerfi fyrir alla – jafngildi og gæði náms
„Hvenær hefur maður lært og hvenær hefur maður ekki lært?“
BSRB húsinu, Grettisgötu 89, fimmtudaginn 3. mars kl. 9-15




