Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Bologna_logo_f_haegri


europass_logo.jpg

EG_20

banner_vertical.gif
apple

Á þessari síðu er að finna krækjur á ýmis verkfæri sem gagnast geta náms- og starfsráðgjöfum sem aðstoða fólk sem vill flytjast á milli landa til náms, launaðra starfa eða sjálfboðaliðsstarfa. Um er að ræða ýmsar aðferðir sem þegar hafa reynst vel í öðrum löndum, upplýsingar um raunhæfar aðstæður sem fólk sem flyst á milli landa upplifir og krækjur á ýmis verkfæri sem geta komið sér vel þegar hefja skal líf í nýju landi.

Efnið á þessum vef er byggt á vef sem Søren Kristensen skrifaði fyrir vef dönsku Euroguidance skrifstofunnar. Hann gaf góðfúslega leyfi sitt fyrir notkun þess og eru honum færðar bestu þakkir fyrir. Efninu hefur verið breytt nokkuð þannig að það passaði betur við íslenskar aðstæður.

Leit að störfum:

Best er að hefja leitina hjá Evrópsku vinnumiðluninni Eures. Á forsíðunni birtist listi yfir laus störf í Evrópu og síðan má leita að störfum á ákveðnum sviðum í sérstakri leitarvél.

Finna má upplýsingar um nám og störf í útlöndum á ótal stöðum, t.d. í hvers kyns handbókum og bæklingum og gangnagrunnum á netinu. Um er að ræða upplýsingar um t.d. búferlaflutninga, skattamál, áritanir, námsmöguleika, sjúkratryggingar, húsnæði og hvað dvöl í landinu kostar. Í þessari verkfærakistu eru ekki slík verkfæri heldur verkfæri sem tengjast sjálfri ráðgjöfinni. Þeim er raðað á rökréttan hátt þannig að ráðgjafinn er leiddur í af einu þrepi á annað, frá ráðgjöf áður en haldið er út, á meðan ráðþeginn dvelur í öðru landi og eftir að hann kemur heim. Aðferðir við svona ráðgjöf eru í stöðugri þróun eftir því sem þeim fjölgar sem velja að búa erlendis í skemmri eða lengri tíma.

Notkun verkfærakistunnar

Gott er fyrir þá sem ekki hafa notað verkfærin áður að taka sér góðan tíma í að kynna sér þau öll áður en haldið er lengra og fá þannig yfirsýn yfir alla notkunarmöguleikana. Neðst á hverri vefsíðu er krækja með heitinu „halda áfram í verkfærakistu“ sem gott er að nota við fyrstu yfirferð. Seinna er svo hægt að hoppa beint á milli þeirra atriða sem við eiga hverju sinni.

Ef einhverjar spurningar vakna hafðu þá endilega samband við Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar (ds@hi.is).

Áfram í verkfærakistu – Hvað er í verkfærakistunni?