Framvegis tekur þátt í Leonardo-verkefni ásamt fimm öðrum Evrópulöndum. Verkefnið ber heitið Providence sem er stytting á Providing competences (to workforce). Verkefnið gengur út á kynnast starfsemi samstarfsaðilanna í verkefninu með það að markmiði að hver samstarfsaðili noti þá þekkingu til þess að efla og auka gæði í þeirri starfstengdu menntun sem þeir bjóða upp á í sínu heimalandi.
Námskeiðin verða haldin í Námu, sal Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7 en einnig verða þau send út með fjarfundabúnaði og aðgengileg á nokkrum símenntunarmiðstöðvum á landsbyggðinni. Þátttakendur af landsbyggðinni geta nálgast gögn hér á bakvið.
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.
Í stað hefðbundins ársfundar mun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB halda ráðstefnu undir heitinu „Úrræði til árangurs“ á Hótel Hilton Nordica dagana 26. og 27. nóvember.
Dagana 27. – 30. september síðastliðinn var haldin tengslaráðstefna í Dublin á Írlandi. Fulltrúar frjálsra félaga, stofnana og skóla frá ýmsum löndum komu þar saman til að leita samstarfsaðila.
CEDEFOP, Starfsmenntastofnun Evrópu, hefur gefið út bækling með úrvali dæma um það sem gert er í starfsmenntamálum í Evrópu.
Íslenska, norska og danska landskrifstofan í samvinnu við baltnesku löndin og Norðurlönd standa fyrir tengslaráðstefnu mannaskipta- og samstarfsverkefna Leonardó þann 22. – 24. október í Reykjavík.
Árlega eru veittir styrkir til mannaskiptaverkefna Leonardó starfsmenntaáætlunarinnar, þar sem fólki í starfsnámi, ungu fólki á atvinnumarkaði og leiðeinendum og/eða stjórnendum gefst kostur á að afla sér starfsþjálfunar innan síns fagsviðs í öðrum Evrópulöndum.
Ráðstefna undir yfirskriftinni „Keeping On Track“ var haldin í Prag þann 4. til 5. júní sl. Ráðstefnan var hluti samnefnds samstarfsverkefnis sem Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB á Íslandi leiðir í samstarfi við tólf aðrar landskrifstofur og Nordic Network for Adult Learners (NVL).
Starfsendurhæfing fyrir öryrkja, námsskrá fyrir ófaglært fólk í ferðaþjónustu, stuðningur við brotthvarfsnemendur og þjálfun rafvikjanema eru þau verkefni sem voru hlutskörpust í vali á fyrirmyndarverkefnum Leonardó starfsmenntunaráætlunar ESB í dag.
Starfsendurhæfing fyrir öryrkja, námsskrá fyrir ófaglært fólk í ferðaþjónustu, stuðningur við brotthvarfsnemendur og þjálfun rafvikjanema eru þau verkefni sem voru hlutskörpust í vali á fyrirmyndarverkefnum Leonardó starfsmenntunaráætlunar ESB í dag.
Í febrúar 2008 undirrituðu aðilar vinnumarkaðarins kjarasamninga sem meðal annars fela í sér eftirfarandi: Ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins stefna að því að ekki verði fleiri en 10% fólks á vinnumarkaði án viðurkenndrar starfs- og framhaldsskólamenntunar árið 2020.
Ráðstefnan, sem ber heitið „Tools for transparency within vocational education and training in Europe“ er samstarfsverkefni Landskrifstofa Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Írlands og er einkum ætluð fyrir þá sem hafa hug á því að sækja um Leonardó yfirfærsluverkefnisstyrk (transfer of innovation projects) á næsta umsóknarfresti sem er 27. Febrúar 2009.
Niðurstöður tilraunaverkefnisins GEMS – Guidance for Educators, Mentors and Students verða kynnar á lokaráðstefnu verkefnisins fimmtudaginn, 6. nóvember næstkomandi á Hilton Reykjavik Nordica Hotel, Suðurlandsbraut 2 108, Reykjavik.
Í dag voru undirritaðir samningar um styrki úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun ESB. Úthlutunarnefnd ákvað að undangengnu mati sérfræðinga að styrkja 4 verkefni en að þessu sinni bárust 7 umsóknir. Heildarkostnaður vegna verkefnanna nemur um 116 milljónum króna en þar af styrkir Leonardo áætlunin 93 milljónir.
Styrkjum var úthlutað til 28 fyrirtækja, skóla og stofnana til samtals 205 einstaklinga.
Þann 5. nóvember sl. voru undirritaðir samningar um styrki til yfirfærsluverkefna úr Leonardo da Vinci hluta Menntaáætlunar Evrópusambandsins. Verkefnin sem um ræðir eru svokölluð yfirfærsluverkefni en þau hafa það að markmiði að auka gæði og aðdráttarafl evrópska starfsmenntakerfisins með aðlögun og innleiðingu nýjunga á sviði starfsmenntunar til nýrra markhópa og starfsgreina innan starfsmenntakerfa í 31 Evrópulandi.
Starfsendurhæfing Norðurlands hefur leitt verkefnið. Markmið þess er að þróa heildstætt, fjölþátta endurhæfingarkerfi ætlað fólki sem býr við örorku og takmarkaða starfsgetu af þeim sökum. Á ráðstefnunni munu þátttakendur í verkefninu skýra frá árangri starfsendurhæfingarinnar í hverju landi fyrir sig. Einnig verður handbók verkefnisins kynnt.
„Validating competencies acquired in the workplace“ er titill ráðstefnunnar en verkefnið sem stýrt er af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins miðar að þvi að þróa aðferðir til að meta raunfærni einstaklinga í atvinnulífinu.
Styrkjum úthlutað til 21 fyrirtækja, skóla og stofnana fyrir samtals 172 einstaklinga. Mikil fjölbreytni einkenndi verkefnishugmyndir að þessu sinni. Sem dæmi um verkefni má nefna að meðal nýrra umsækjenda nú er ÁTVR sem ætla að senda bæði nemendur og umsjónarmann með vínskóla fyrirtækisins í starfsþjálfun til nokkurra vínframleiðenda í Evrópu og Myndlistaskólinn í Reykjavík sótti um fyrir nemendur á nýrri námsbraut skólans, en starfsþjálfun í Evrópu verður hluti af formlegu námi á henni.
Á ráðstefnunni verður verkefnið kynnt sem og árangur þess í þátttökulöndunum sex, þ.e. Ítalíu, Danmörku, Tékklandi, Slóvakíu, Þýskalandi og á Íslandi. Örsögur af konum er hafa tekið þátt í nýsköpun eða byggt upp atvinnutækifæri í dreifbýli verða sagðar og fjallað um þau tækifæri sem þátttakendum býðst í gegnum notkun á vefmiðlum og tengslanets uppbyggingu. Ráðstefnan er öllum opin. Erindin verða flutt á ensku, með stuttri kynningu á íslensku.
Verkefnin eru PPS – Personal Profile & Support for Learners sem stjórnað er af Háskólanum í Reykjavík og Workplace Guidance, verkefni sem stjórnað var af Starfsafli.
Ráðstefnan er hluti af vinnu innan Leonardo starfsmenntaáætlunar sem kallast „thematic monitoring“. Ísland stýrir verkefnishópi 1 sem kallast „VET and the labour market, guidance and other specific groups“ og skipulagði ráðstefnuna í samvinnu við Landsskrifstofu Leonardo í Slóveníu.
Á fundi menntamálaráðherra Evrópu í Helsinki 4. og 5. desember sl, var íslensku Leonardó tilraunaverkefninu veitt viðurkenning sem eitt af 10 bestu verkefnum í Evrópu á árunum 2000-2006. Verkefnið heitir Námshvatning á vinnustað og er stýrt af Starfsafli, fræðslusjóði Eflingar.






