Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Leonardo SAMSTARFSVERKEFNI (Partnership) eru verkefni þar sem þátttakendum gefst kostur á samstarfi á sviði starfsmenntunar.  Verkefnin eru smærri verkefni þar sem unnið er að þróun og ákveðnu málefni á tveggja ára tímabili.  Samstarfsaðilar hittast reglulega og eru styrkir veittir miðað við fjölda funda sem skipulagðir eru í verkefninu.  Styrkjum til samstarfsverkefna er stýrt beint frá heimalandinu. 

 

Lýsing

Segja má að samstarfsverkefni (partnership verkefnin) séu millistig á milli mannaskipta- og yfirfærsluverkefna í Leonardo. Í mannaskiptaverkefnum getur hver þátttakandi aðeins farið í eina heimsókn, en í samstarfsverkefnum gefst samstarfsaðilum  tækifæri á að hittast oftar, þróa hugmyndir sínar og láta á þær reyna á tímabilinu. Samstarfsverkefni eru smærri í sniðum og einfaldari en yfirfærsluverkefni, en samstarfsverkefnin geta mjög vel nýst til að prófa afurð yfirfærsluverkefnis.

Samstarfsverkefni eru upplögð leið til að bera saman og hafa samráð og kynningu á gagnsæi náms á milli landa í anda Kaupmannahafnar- og Helsinki yfirlýsingana, EQF (evrópska gæðarammann), ECVET einingakerfi í starfsmenntun og hágæða menntun sem hæfir lykilatvinnuvegum í löndunum.

Í Leonardo samstarfsverkefnum er gert ráð fyrir að í lok verkefna liggi fyrir niðurstöður eða afurðir sem hægt er að kynna og nýta til frekari þróunar, t.d. skýrslu, margmiðlunarefni, handbók, ráðstefnu eða annað. 

 

Þátttakendur

Verkefnin eru samstarfsverkefni milli a.m.k. 3ja landa og þarf eitt landana að vera Evrópusambandsland.  Í umsóknarferlinu er lögð rík áhersla á þátttöku fleiri landa en það er möguleiki að þátttakendur í umsókn detti út úr samþykktum verkefnum ef fjármagn viðkomandi lands nægir ekki til að styrkja allar umsóknir.

Í Leonardo samstarfsverkefnum er lögð áhersla á fjölbreyttan samstarfshóp og virkt samstarf atvinnulífs og skóla.  Að umsókn um samstarfsverkefni þurfa því að standa bæði fulltrúar menntastofnana sem og aðilar vinnumarkaðar, atvinnulífs eða starfsgreina.  Í sumum verkefnum er lögð áhersla á þátttöku notenda; nema eða annara sem málefnið varðar beint en í öðrum verkefnum er lögð áhersla á vinnu og beina þátttöku sérfræðinga í starfsmenntun og starfsfólk þátttökustofnana.

Hverjir geta sótt um styrk?

Allar menntastofnanir sem sinna starfsmenntun og aðrir aðilar sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun á einhvern hátt s.s. skólar og fræðsluaðilar, stéttarfélög og aðilar vinnumarkaðar, félagasamtök og fagfélög, fyrirtæki, aðilar sem sinna náms- og starfsráðgjöf og rannsóknastofnanir og símenntunarmiðstöðvar. Næsti umsóknarfrestur er 21. febrúar 2012.

Hvernig má nota styrkinn?

Veittur er styrkur til að sækja verkefnisfundi. Upphæðin er föst og fer eftir áætluðum fjölda funda á verkefnistímanum.
 

Aðstoð við umsækjendur

Landskrifstofa Leonardo veitir allar frekari upplýsingar um áætlunina, veitir ráðgjöf varðandi þróun verkefna og aðstoðar umsækjendur við leit að samstarfsaðilum. Verkefnastjóri samstarfsverkefna er  Margrét Sverrisdóttir, mks(hjá)hi.is