Grundtvig styrkir samstarfsverkefni milli fullorðinsfræðslustofnana:
- Samstarfsverkefni sem byggja á samstarfi minnst 3 landa. Viðfangsefnin geta verið margs konar en eiga það þó sammerkt að styrkja fullorðna í námi og gef þeim tækifæri
- Sjálfboðaliðaverkefni. Fulloðrinsfræðslustofnanir frá 2 Evrópulöndum koma á fót tveggja ára verkefnum sem felast í verkefnavinnu og sjálfboðaskiptum 50 ára og eldri í minnst 3 vikur
- Vinnustofur. Markmið þeirra er að stykrja nemendur í fullorðinsfræðslu til að sækja vinnustofur í Evrópa. Árleg handbók greinir frá öllum þeim vinnustofum sem standa til boða. Þá er hægt að sækja um styrk til að halda vinnustofu í nánast hverri þeirri námsgrein sem fullorðnir nemendur geta haft gagn af.
Einnig er hægt að sækja um stærri samstarfsverkefni til dæmis þróun námsefnis, eða þematísk net beint til framkvæmdastjórnarinnar í Brussel. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012 (kl. 12:00 á hádegi). Sjá miðstyrð þróunarverkefni.


