Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Bologna_logo_f_haegri


europass_logo.jpg

EG_20

banner_vertical.gif

Hver er ávinningurinn af því að nota Europass ferilskrána?

  • Í Europass ferilskrána eru skráð fleiri atriði en í hefðbundinni ferilskrá. Þar er einnig skráð tungumálakunnátta, félags- og tæknileg færni, tölvukunnátta, listræn færni og önnur færni og hæfni sem fengist hefur annað hvort í gegnum starf eða menntun á vinnustað eða annars staðar.
  • Europass ferilskrána má aðlaga að þörfum hvers og eins. Til dæmis er ólíklegt að ungur einstaklingur hafi jafn mikla reynslu og eldri maður og því er hægt að þurrka út úr eyðublaðinu það sem ekki á við.
  • Europass ferilskráin er til á 25 tungumálum.

Sýnishorn af Europass ferilskránni (.pdf, 87 kb)
 

Sjálfsmatsrammi í tungumálum

Kynningarherferð 2010

Vorið 2010 var farin mikil kynningarherferð á Europass ferilskránni um allt land. Nemendur og kennarar í margmiðlunarhönnun í Borgarholtsskóla bjuggu til sérstakt myndband sem sett var á YouTube og allir nemendur í 10 bekkjum grunnskóla fengu sérstakar ferilmöppur sem starfsmenn Bjargaráss sáu um að útbúa. Nokkar myndir af herferðinni eru hér í viðhengi.

Hraðleiðir til að gera ferilskrá

 Hér er hraðleið inn á gerð nýrrar ferilskrár á íslensku. Í efra horni hægra megin er hægt að velja önnur tungumál.

Hér er hraðleið á uppfærslu eldri ferilskrár á íslensku. Á sama hátt og fyrr má velja önnur tungumál.

Til eð gera ferilskrá á öðrum tungumálum er best að fara á Europass síðu CEDEFOP.  Þar eru öll Europass skjölin vistuð á fjölmörgum tungumálum.