Starfslýsingar
Hér má finna nákvæmar lýsingar á fjölmörgum störfum í íslensku samfélagi. Starfslýsingunum er skipt í tvo flokka: annars vegar sérfræði- tækni- og stjórnunarstörf og hins vegar sérgreinar í iðnaði og þjónustu.
Starfslýsingarnar voru unnar af félagsvísindadeild Háskóla Íslands sem hluti verkefnisins „Færnikröfur starfa“. Bókin Starfslýsingar var gefin út árið 1990 af bókaforlaginu Iðunni í samvinnu við félagsvísindadeild H.Í. Starfslýsingar II kom út árið 1996 hjá IÐNÚ, einnig í samvinnu við félagsvísindadeild H.Í. Ritstjóri bókanna er Gerður G. Óskarsdóttir. Athugið að þetta eru þungar skrár og því lengi að hlaðast inn.




