Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

Úrræði til árangurs: Ráðstefna um menntun á vinnumarkaði í nútíð og framtíð

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Landsskrifstofa Menntaáætlunar ESB bjóða til ráðstefnu á Hótel Hilton Nordica, dagana 26. - 27. nóvember 2009.
Fyrri daginn verður áherslan á þau úrræði sem hægt er að grípa til hér og nú til þess að bregðast við því ástandi sem nú ríkir á íslenskum vinnumarkaði en seinni daginn verður einkum hugað að menntun á vinnumarkaði til frambúðar.

Framtíðarsamfélagið mun kalla á síaukna hæfni fólks á ýmsum sviðum, samanber rannsóknir í Evrópu á þörf atvinnulífsins fyrir færni og stefnumótun Evrópusambandsins „Ný hæfni fyrir ný störf“. Hröð þróun í tækni og vísindum krefst þess að fólk læri fljótt og vel að nota nýjustu tækni en einnig að fólk geti unnið saman í hópum og leyst þau vandamál sem upp kunna að koma. Ef til vill er hægt að nýta sér fjármálakreppuna sem nú geisar í heiminum til þess að undirbúa fólk undir þessa framtíð. Vinnutími hefur styst og fjöldi atvinnulausra hefur margfaldast þannig að nú er lag að nota tímann til þess að mennta sig. Þar gegna t.d. símenntunarmiðstöðvarnar lykilhlutverki sem og  allir þeir aðilar sem bjóða upp á óhefðbundin menntunarúrræði.  Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins hafa lýst yfir vilja sínum til samstarfs í menntamálum og rætt verður hvernig mæta á þörfum atvinnulífsins fyrir færni til framtíðar. hvernig þeir ætla að fara að og hver mun bera ábyrgð á hverju. Taka þarf sérstakt tillit til hópa sem standa höllum fæti á vinnumarkaðnum og kynnt verða samstarfsverkefni sem snérist um tvo slíka; eldra fólk á vinnumarkaði og lesblinda. Ekki má heldur gleyma náms- og starfsráðgjöfinni sem er og verður ómissandi tæki þeirra sem vita ekki hvar þeir eiga að byrja. 

Dagskrá

 

Dagskrá ráðstefnunnar Úrræði til árangurs (.pdf 311 K) Sækja skjal

Glærur fyrirlesara

 

Myndir frá síðari degi ráðstefnunnar