Umsóknarfrestir:
Mannaskipti 5. febrúar
Samstarfsverkefni 19. febrúar
Yfirfærsluverkefni 26. febrúar


Upplýsingar á vef ESB
 

 

hnappur_nsn.jpg

 

 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Þegar sótt er um undirbúningsstyrk þarf að fylla út rafrænt umsóknareyðublað. Rafræna umsóknarformið er pdf skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 8.1 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com
 

Rafrænt umsóknareyðublað um umsóknarstyrk

 

Mikilvægar leiðbeiningar

Smellið á tengilinn til þess að sækja umsóknareyðublaðið. Sækið ykkur í leiðinni handbókina um rafræna formið og hafið það til hliðsjónar við útfyllingu umsóknarinnar. Athugið að vista strax umsóknareyðublaðið í tölvunni ykkar, annað hvort á skjáborðið eða í möppu (afar mikilvægt). Fyllið út alla skyldureiti.

Til að ganga úr skugga um að formið hafi verið fyllt rétt út, smellið þá á Validate-hnappinn. Ef ekki hefur verið fyllt rétt út, kemur upp ábending um það. Ekki er hægt að senda inn rafræna útgáfu umsóknarinnar fyrr en hægt er að "Validera" alla umsóknina. Þegar því er lokið og umsóknina telst "gild", skal smella á Submit Online - hnappinn. Þá er rafrænt afrit af umsóknin sent inn í umsóknarkerfi ESB.

Ef sendingin heppnast, opnast staðfesting á því (Submission Confirmation). Prentið staðfestinguna út  og prentið í kjölfarið út umsóknina. Vinsamlegast athugið á samræmi sé á milli kóða umsóknarinnar (Hash Code - neðst á síðunni) og kóðans á staðfestingunni.

ATH! Til að umsókn teljist fullgild þarf að prenta hana út í kjölfar þess að hún er send inn rafrænt og senda útprentað eintak af henni í pósti til Landskrifstofunnar. Það er ekki fyrr en starfsólk Landskrifstofunnar hefur fengið prentað eintak af umsóknarinnar í hendur sem hún fer í mat. 

Prentuð útgáfa umsóknarinnar er send í pósti á:

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
b/t Margrétar Sverrisdóttur
Dunhaga 5,
107 Reykjavík

Vinsamlegast athugið að  prentaða útgáfa umsóknarinnar er sú sem ræður, ef misræmi er á milli rafrænnar- og prentaðrar útgáfu.

Ef einhverjar  spurningar vakna, vinsamlegast hafið samband við starfsfólk Leonardo áætlunarinnar til að fá frekari leiðbeiningar.

Lokaskýrsla - greiðsla styrks

Þegar heim er komið þarf að skila  lokaskýrslu vegna undirbúningsheimsókna. Ekki er hægt að greiða út styrkinn fyrr en lokaskýrsla hefur skilað sér til Landskrifstofunnar.

Smelltu hér til að sækja lokaskýrslu