Á vegum eTwinning er ýmislegt gert til þess að hvetja kennara til dáða, gera vinnu þeirra sýnilegri og umbuna fyrir góð verkefni.
Landskeppni eTwinning á Íslandi
Landskeppni eTwinning er samkeppni á vegum landskrifstofunnar um bestu eTwinning verkefnin sem íslenskir skólar taka þátt í á hverju skólaári. Verðlaunin eru veitt á hausti fyrir verkefni skólaársins á undan.
Evrópsku eTwinningverðlaunin
Evrópsku eTwinningverðlaunin eru veitt á árlegri stórráðstefnu eTwinning fyrir frambærilegust verkefnin í álfunni. Veitt eru glæsileg verðlaun í mismunandi flokkum. Handhöfum fyrstu verðlauna, bæði kennurum og nemendum, er boðið til skólabúða um rafræna menntun á sólríkum stað sunnarlega í álfunni. Kennarar skrá verkefni sín sjálfir til leiks. Umsóknarfrestur er auglýstur með góðum fyrirvara af landskrifstofunni.
Ath. að evrópska gæðaviðurkenning eTwinning er nú skilyrði þess að taka þátt í Evrópuverðlaununum. Það er gert með því að sækja um gæðamerki sinnar landskrifstofu -- sem er mjög einfalt.
Umsóknarfrestur er til og með 12. september nk. -- sjá leiðbeiningar um umsókn neðar á þessari síðu.
Gæðamerki landskrifstofur og evrópska gæðamerkið
Kennarar geta sótt um gæðaviðurkenningu til sinnar landskrifstofu (National Quality Label). Ef samstarfsaðilar verkefnisins fá gæðamerki frá sínum landskrifstofum fær verkefnið evrópska gæðamerkið (European Quality Label). Gæðamerkið hefur þann tilgang að gera árangur skólans sýnilegri og geta skólar sett það upp á sinni heimasíðu.
Evrópska gæðamerkið er skilyrði þess að verkefni geti tekið þátt í Evrópuverðlaunum eTwinning. Þeir sem hyggja á þátttöku verða því að sækja um gæðamerki sinnar landskrifstofu til og með 12. september nk. Það er mjög einfalt. Farið inn á ykkar eTwinning-svæði (eTwinning desktop), og sækið um gæðamerkið undir Projects, hægra megin (sjá mynd).
Umsóknarfrestur fyrir þá sem ætla að taka þátt í Landskeppni eTwinning og/eða Evrópuverðlaunum eTwinning er til og með 12. september nk.



