Umsóknir og eyðublöð fyrir skólaárið 2010-2011
Fyrsti umsóknarfrestur er 1. mars 2010. Annar frestur er 15 maí 2010. Umsóknir sem berast eftir 15. maí fara á biðlista.
| Áætlun | Umsóknir | Skýrslur |
|---|---|---|
| Gestakennsla | Umsókn fyrir skólaárið 2010-2011 | Kemur síðar |
| Starfsþjálfun | Umsókn fyrir skólaárið 2010-2011 | Kemur síðar |
Umsóknir og eyðublöð fyrir skólaárið 2009-2010
Umsóknarfrestur var til 1. mars 2009. Umsóknir sem berast eftir 1. mars fara á biðlista.
| Áætlun | Umsóknir | Skýrslur |
|---|---|---|
| Gestakennsla | Umsókn fyrir skólaárið 2009-2010 | Lokaskýrsla |
| Starfsþjálfun | Umsókn fyrir skólaárið 2009-2010 | Lokaskýrsla |
Leiðbeiningar
Eftir að umsóknin hefur verið fyllt út á netinu og hún send rafrænt er boðið upp á prentvæna útgáfu. Umsækjandi undirritar útprentað eintak og fær einnig undirritun viðeigandi „yfirmanns“ og skilar umsókninni til alþjóðaskrifstofu síns skóla.
Umsóknin er í tveimur (2) skrefum. Athugið að til að fara á milli skrefa eru notaðir takkarnir „next“ og „previous“. EKKI nota „back“ takkann í vefskoðaranum, við það tapast umsóknin. Aðgætið að gulleitir reitir verða að vera fylltir út til að hægt sé að senda umsóknina. Þegar búið er að fylla út alla reiti er umsóknin send með því að ýta á takkann „submit form“. Þegar umsóknin hefur verið send er boðið upp á prentvæna útgáfu. Prentaðu umsóknina út.
Vinsamlegast athugið að til að umsóknin sé gild þarf hún að vera undirrituð af umsækjanda og einnig af yfirmanni, það er skorarformanni/deildarforseta/rektor eða eftir því sem við á í hverjum skóla.
Lokaskýrsla
Að dvöl lokinni þarf aðeins að ganga frá lokaskýrslu á netinu að því gefnu „teaching plan“ eða „training plan“ hafi verið fullnægjandi. Ef „teaching plan“ eða „training plan“ var ábótavant þyrfti að skila inn staðfestingu á dvölinni frá gestaskóla/stofnun þar sem fram kæmi lýsing á dvölinni.


