Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Uppihald og ferðir

Í verkefnum ársins 2012 er styrkur vegna uppihalds og ferða ekki sundurliðaður  heldur er um eina upphæð að ræða.  Gefnar eru út styrkupphæðir  fyrir eina viku, tvær vikur og síðan per viku eftir það. 

Styrkupphæðir uppihalds eru misháar eftir löndum. Í töflu styrkupphæða uppihalds eru tilgreindar upphæðir fyrir íslenska umsækjendur í verkefnum ársins 2012. Í töflunni er um að ræða hámarksupphæðir sem gilda fyrir það land sem heimsótt er.

Ekki er veittur sérstakur viðbótarstyrkur til ferðalaga.  Undantekning frá þeirri  reglu er að mögulegt er að sækja um viðbótarstyrk vegna ferðalaga til Lettlands, Litháen, Eistlands, Búlgaríu og Rúmeníu sem nemur að hámarki 500 evrum á mann en miðast við raunkostnað.

Í umsóknareyðublaðinu eru dálkar fyrir annars vegar uppihald (subsistence) og hinsvegar ferðir (travel)  Í íslenskum umsóknum skal aðeins fylla inn í dálkinn fyrir uppihald – subsistence.  Ekki er fyllt inn í reitinn fyrir ferðir (travel) nema í þeim undantekningartilfellum sem skýrð eru hér fyrir ofan.

Athugið að 2 vikur er lámarksdvöl fyrir verkefnaflokkana IVT - nemendur í starfsmenntaskólum, starfsnámi og á samningi og PLM - fólk á vinnumarkaði.  Einnar viku dvöl er því aðeins möguleg fyrir fagaðila í starfsmenntun  í VETPRO verkefnaflokknum.

Styrkir fyrir fatlaða einstaklinga og/eða fólk með sérstakar þarfir

Mögulegt er að sækja um viðbótarstyrk vegna ferða fyrir fatlaða einstaklinga sem þurfa sérstakar ráðstafanir við ferðalög, aðrar en fylgdarmenn.  Þá þarf að fylla inn raunupphæð fyrir ferðir og er hámarkstyrkur fyrir ferðir í þeim tilfellum 1000 evrur á mann. Við uppgjör þarf að leggja fram reikninga fyrir ferðakostnaði og aldrei er greitt meira en sem nemur raunkostnaði.

Einnig er hægt að sækja um  sérstakan styrk fyrir fylgdarmenn ef þörf er á og miðast þá styrkurinn við venjulegar styrkupphæðir miðað við dvalarlend (sjá tölfu).  Beiðni um slíka styrki er færð inn í töflu fyrir fylgdarmenn (accompanying persons) í umsókninni.

Styrkir fyrir fylgdarmenn (accompanying persons)

Mögulegt er að sækja um styrk fyrir fylgdarmenn t.d. nemenda og eru styrkupphæðir þá þær sömu og fyrir aðra þátttakendur – sjá töflu.  Rökstyðja skal þörfina í skýringum með fjárhagsáætlun í umsókn.

Undirbúningsstyrkir (requested funding for preparation)

Undirbúningsstyrkir eru fyrir menningar- og tungumálaundirbúning þátttakenda tveggja markhópa, þ.e. nemenda í starfsmenntun (IVT) og fólks á vinnumarkaði(PLM). Aðeins er hægt að veita styrk fyrir undirbúningi sem er umfram hefðbundna kennslu og skal kostnaðurinn sem sótt er um rökstuddur í umsókn og við uppgjör þurfa þátttakendur að staðfesta þátttöku í þeim undirbúningi sem skipulagður hefur verið. Styrkupphæð er að hámarki 300 evrur á mann.

Athugið að ekki er veittur styrkur fyrir menningar – og tungumálaundirbúningi fyrir  þáttakendur í flokki fagaðila í starfsmenntun (VETPRO)

Umsýslustyrkir (organisation of mobility)

Mögulegt er að sækja um styrk fyrir umsjón og skipulagningu verkefna.  Þessir styrkir skulu renna til þeirrar stofnunar sem sér um framkvæmd verkefnisins en ekki til einstakra þátttakenda.  Styrkurinn miðast við fjölda þátttakanda í verkefnum og er hámarksstyrkur 200 evrur fyrir hvern þátttakenda. Athugið að ekki er hægt að veita umsýslustyrk vegna fylgdarmanna.