Hér fyrir neðan er hægt að sækja rafrænt umsóknareyðublað fyrir árið 2012. Einnig er hægt að sækja handbók (á ensku) um notkun og innfyllingu eyðublaðsins.
Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum, þ.m.t kvittuninni fyrir því að umsókn hafi verið send, í þríriti (frumrit og tvö afrit) til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests, 21. febrúar 2012. Póststimpill gildir. Undirrituð umsókn á pappír er hin gilda umsókn og berist hún ekki á pappír á tilsettum tíma er hún ógild.
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Comenius - skólasamstarf
Háskólatorgi
101 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2012.
| Áætlun | Umsóknir | Skýrslur | Handbók | Leiðbeiningar |
|---|---|---|---|---|
| Skólasamstarf |
ATH! Afar mikilvægt er að vista (Save) umsóknarformið strax í tölvunni ykkar áður en þið farið að fylla inn í það. Ef senda á umsóknina á milli í tölvupósti er ráðlagt að zippa hana fyrst til að koma í veg fyrir að gögnin skemmist. |
Landskrifstofa sendir verkefnisstjóra samstarfsverkefna tengil í milli- og lokaskýrslu. |
|
|
| Nemandaskipti |
|
|
||
| Nemdaskiptaverkefni |
|
Landskrifstofa sendir verkefnisstjóra samstarfsverkefna tengil í milli- og lokaskýrslu. |
|
|
| Svæðasamstarf |
|
Landskrifstofa sendir verkefnisstjóra samstarfsverkefna tengil í milli- og lokaskýrslu. |
|
Leiðbeiningar fyrir notkun rafrænna umsóknareyðublaða
Rafræna umsóknareyðublaðið er pdf-skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 8.2 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com
Helstu þrepin sem þarf að fara í gegnum til þess að senda inn gilda umsókn:
-
Vista rafræna umsóknareyðublaðið á skjáborðið í tölvunni sem PDF skjal. Loka vafraglugganum. Opna umsóknareyðublaðið frá skjáborðinu.
-
Fylla út eyðublaðið (í tölvunni)- Ekki þörf fyrir að vera nettengdur á meðan;
-
Smella á Validate-hnappinn á rafræna forminu (ekki nettengd/ur): Þessi aðgerð tryggir að allir skyldureitir séu útfylltir( og uppfylli lágmarkskröfu um ákveðið form framsetningar);
-
Senda umsóknareyðublaðið inn rafrænt: Ath. það er eingöngu stýristofnun samstarfsverkefna sem sendir umsóknina inn rafrænt. Til að senda umsóknareyðublaðið inn rafrænt þarf tölvan að vera nettengd. Þá er smellt á hnappinn Sumit online á öftustu síðunni. Ef sendingin heppnast kemur upp staðfesting á því;
-
Vista: Við mælum með að þú vistir umsóknina undir lýsandi nafni á góðum stað í tölvunni þinni (þar sem þú getur fundið hana aftur) því þú gætir þurft að skoða hana síðar;
-
Prenta: Rafræna umsóknareyðublaðið (til undirritunar), ath! allir samstarfaðilar þurfa að skila inn útprenti með undirritun til sinnar Landskrifstofu;
- Senda í pósti til Landskriftofu fyrir lok umsóknarfrests: Útprentaða og undirritaða umsókn. Athugið að ekki er nóg að senda umsóknina inn rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum í þríriti til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests. Póststimpill gildir.
ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)



