Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Desiderius Erasmus var húmanisti, fæddur árið 1466 í Rotterdam. Litið er vitað um æsku Erasmusar. Erasmus þykir einn merkasti rithöfundur síns tíma.  Þekktasta verk hans er dag er sennilega „Lof heimskunnar“ sem er skopádeila þar sem heimskan kveður sér hljóðs og rekur hvernig mennirnir og jafnvel guðirnir megi þakka henni allt það sem einhvers er virði.

Erasmus byrjaði að stunda nám aðeins fjögurra ára gamall í bænum Gouda. Eftir skólagöngu í Gouda fór hann til Utracht og svo Deventer í nám þar sem hann lærði latínu. Ungur að aldri missti hann foreldra sína úr sárasótt. Stuttu eftir það neyddist hann til að ganga í klaustur sökum fátæktar. Í klaustrinu komst hann í mikinn bókakost og hóf sinn riferil þar. Honum virðist ekki hafa líkað dvölin og um 25 ára aldur gékkst hann undir prestseið með semingi.  Eftir klausturvistina (1495) hóf hann framhalsnám í París með styrk frá kaþólsku kirkjunni. Eftir þetta stundaði hann nám og fræðistörf víða í Evrópu og virðist aldrei hafa verið lengi á sama stað.

Menntun færði hann úr fjötrum fátæktar og gerði honum kleyft að lifa og starfa viðvegar í Evrópu.
Nafn hans er því kjörið á áætlun hvers  markmiði er að fá stúdenta og starfsfólk háskóla til að upplifa Evrópu gegnum nám eða starf fjarri sínum heimaskóla.

Sjá ítarlega umfjöllun um Erasmus á Wikipedia.