Umsóknarfrestir:
Mannaskipti 5. febrúar
Samstarfsverkefni 19. febrúar
Yfirfærsluverkefni 26. febrúar


Upplýsingar á vef ESB
 

 

hnappur_nsn.jpg

 

 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Umsóknareyðublað 2010

Hér fyrir neðan er hægt að sækja rafrænt umsóknareyðublöð fyrir yfirfærsluverkefni (TOI) árið 2010 ásamt fylgiskjölum.  Einnig er hægt að sækja handbók um notkun og innfyllingu eyðublaðsins. Vinsamlegast athugið að rétt útgáfa af umsóknareyðublaðinu er útgáfa nr. 2.7.

Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum, þ.m.t kvittuninni fyrir því að umsókn hafi verið send, í þríriti (frumrit og tvö afrit) til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests, 26. febrúar 2010.  Póststimpill gildir. Undirrituð umsókn á pappír er hin gilda umsókn og berist hún ekki á pappír á tilsettum tíma er hún ógild.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Leonardo starfsmenntaáætlunin,
Tæknigarður,Dunhaga 5
107 Reykjavík

 
Ath! Þær umsóknir sem falla undir séríslenska forgangsatriðið (sjá hér) þurfa að tilgreina það í umsókninni í reit D.2.5.
 

 
Afar mikilvægt er að vista (Save) umsóknarformið strax í tölvunni ykkar áður en þið farið að fylla inn í það.
 

Leiðbeiningar fyrir rafræn umsóknareyðublöð - eForm

Rafræna umsóknarformið er pdf skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 8.1 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com

ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)

    • Umsækjandi verður að vera nettengdur til að sækja og senda inn rafræna umsóknareyðublaðið.
    • Vistið eyðublaðið í tölvunni ykkar (velja Save). Það þarf ekki að vera nettengdur til að vinna með umsóknina í tölvunni.
    • Til að athuga hvort eyðublaðið sé rétt útfyllt, þarf að smella á Validate-hnappinn. Ef ekki hefur verið fyllt rétt út, kemur upp ábending um það.
    • Ekki er hægt að senda inn umsóknina fyrr en hægt er að "Validera" allt eyðublaðið. Þegar því er lokið og umsóknin telst gild,  skal smella á Submit Online - hnappinn. Þá er rafræna umsóknin send (tölvan þarf að vera nettengd). Ef sendingin heppnast opnast staðfesting á því ásamt frekari leiðbeiningum. Prentið þessa staðfestingu út og sendið ásamt umsókninni, útprentaðri í tveimur eintökum til Landskrifstofu (sjá póstfang á forsíðu umsóknar).
    • Vinsamlegast smellið líka á hnappinn "Create email attachment" og sendið umsóknargögnin á lme@hi.is.
    • Ath! Það er prentaða útgáfa umsóknarinnar sem er gild. Ef umsókn er breytt á síðari stigum (áður en umsóknarfrestur rennur út) og send aftur inn rafrænt, þarf að prenta umsóknina aftur út og undirrita og láta viðkomandi verkefnisstjóra vita.
    • Vinsamlegast leitið fyrst upplýsinga í handbókinni um notkun rafrænu eyðublaðanna ef þið lendið í vandræðum.
    • Ef ykkur vantar frekari aðstoð getið þið haft samband við Ástu Vigdísi í síma 525 4151 eða með tölvupósti: astavig(hjá)hi.is 

Skýrslueyðublöð

Athugið að ekki eru öll form fyrir verkefni valin 2007 tilbúin frá Evrópusambandinu en þau verða sett inn á síðuna jafnóðum og þau berast.  Vinsamlegast hafið samband við Landsskrifstofu varðandi upplýsingar og ráð.

Handbækur um fjármál

Handbók um fjármál fyrir verkefni valin 2007 og 2008 (.pdf, 106 kb).

Handbók um fjármál fyrir verkefni valin 2009 (pdf, 565 kb).

Samningar

Hér er að finna drög að samningi milli verkstjórnanda (promoter) og samstarfsaðila (partner) en verkstjórnandi þarf að gera samning við hvern samstarfsaðila í verkefni.

Partner Contract form (.doc, 88 kb)

Skýrsluform

Hér er form sem gott er að nota til að fylgjast með kostnaði frá samstarfsaðilum.
Cost Claim form (.xls, 26 kb)

Milliskýrsluform 2007

Milliskýrsluform (.doc, 1015 kb)

Fjármálahluti milliskýrsluformsins (.xls, 390 kb)

Milliskýrsluform 2008

Milliskýrsluform 2008 (.doc, 984 kb)

Lokaskýrsluform

Lokaskýrsluform 2007 (.doc, 1017 kb)

Lokaskýrsluform 2008 (.doc, 985 kb)

Fjármálahluti skýrsluforma 2008 (.xls,336 kb)

Breyting á samningi

Skýrslublað fyrir breytingu á samningi (Contract Amendment) 2008