Niðurstöður árlegrar úthlutunar til samstarfsverkefna liggur fyrir í júlímánuði og geta verkefnin hafist 1. ágúst svo framarlega sem samningur hafi verið gerður. Eftir að samningur hefur verið undirritaður er greidd fyrirframgreiðsla, 80% af styrkupphæðinni.
Á miðju tímabili skal skila milliskýrslu þar sem skýrt er frá framgangi verkefnisins og lokaskýrslu skal skila tveimur mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins lýkur.
EST - European Shared Treasure er gagnabanki samstarfsverkefna sem allir þátttakendur í samstarfsverkefnum (coordinator and partners) þurfa að skrá í upplýsingum um verkefnin
Hér fyrir neðan eru skýrsluform vegna verkefna ársins 2008
Form fyrir milliskýrslu PROGRESS REPORT (.doc, 140 kb)
Milliskýrslu skal skila til Landskrifstofu Menntaáætlunar, Leonardó áætlunarinnnar á miðju verkefnatímabilinu eða fyrir 30. september 2009.
LOKASKÝRSLAN
Núna er verið að taka í notkun rafræn skýrslueyðublöð, svokölluð e-form fyrir lokaskýrsluna. Þessi form verða ekki tilbúin fyrr en undir lok júlí og setjum við nýtt form á vefinn strax og það berst. Allir þátttakendur í samstarfsverkefnum skulu skila lokaskýrslum í nýja forminu og skýrslur á eldra forminu verða ekki samþykktar.
Lokaskýrslu skal skila til Landskrifstofu Menntáætlunar, Leonardó áætlunarinnnar 2 mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins lýkur og í síðasta lagi 30. September 2010.
Hér fyrir neðan eru skýrsluform vegna verkefna ársins 2009
Form fyrir milliskýrslu PROGRESS REPORT
Athugið að milliskýrslu skal skila til Landskrifstofu Menntaáætlunar, Leonardó áætlunarinnnar fyrir 30. september 2010.
EST, European Shared Treasure gagnabankinn
er sérstakur gagnabanki fyrir Comenius, Leonardo og Grundtvig samstarfsverkefni. Honum er ætlað að auka sýnileika verkefna og bæta aðgengi að upplýsingum um afurðir verkefna. Samkvæmt samningi skulu allir þátttakendur í samstarfsverkefnum (coordinator and partners) skila upplýsingum um verkefnin í EST gagnagrunninn.
Það er munur á hlutverki og aðgangi þeirra sem eru verkefnisstjórar (coordinators) og þátttakenda (partners). Í meginatriðum virkar gagnagrunnurinn þannig að búið er að setja lýsingu á verkefninu inn í kerfið og var hún tekin beint úr umsókninni. Þessi lýsing er á ensku og lokuð öllum nema verkefnisstjórum sem geta lagfært hana ef þörf kerfur. Allir þátttakendur eru beðnir að þýða þessa lýsingu á sitt eigið tungumál. Að auki eru allir þátttakendur beðnir að setja inn upplýsingar um niðurstöður (results) verkefnisins, bæði á íslensku og ensku.
Allir þátttakendur fá senda frá okkur slóð að gagnagrunninum og aðgangsorð. Ítarlegur leiðbeiningabæklingur er hér fyrir neðan en hann er nauðsynlegt að hafa við hendina þegar byrjað er að færa upplýsingar inn í gagnagrunninn.
Leiðbeiningarbæklingur EST - sækja skjal
Skýrslukóðar
Við gerð þeirra skýrslna sem hér um ræðir eru notaðir ýmsar skammstafanir og kóðar. Vinsamlegast smellið hér til að sækja skjal yfir þá kóða sem notaðir eru (.doc, 151 kb).






