Hverjir geta sótt um styrk?
Allar menntastofnanir sem sinna starfsmenntun og aðrir aðilar sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun á einhvern hátt svo sem skólar og fræðsluaðilar, stéttarfélög og aðilar vinnumarkaðar, félagasamtök og fagfélög, fyrirtæki, aðilar sem sinna náms- og starfsráðgjöf, rannsóknastofnanir og símenntunarmiðstöðvar. Næsti umsóknarfrestur er 19. febrúar 2010.
Hvernig má nota styrkinn?
Veittur er styrkur til að sækja verkefnisfundi. Upphæðin er föst og fer eftir áætluðum fjölda funda á verkefnistímanum.
Aðstoð við umsækjendur
Landskrifstofa Leonardo veitir allar frekari upplýsingar um áætlunina, veitir ráðgjöf varðandi þróun verkefna og aðstoðar umsækjendur við leit að samstarfsaðilum. Verkefnastjórar eru María Kristín Gylfadóttir (mkg(hjá)hi.is) og Margrét Jóhannsdóttir (marjoh(hjá)hi.is)
Yfirlit yfir samstarfsverkefni (.doc, 126 kb).






