Umsóknarfrestir:
Mannaskipti 5. febrúar
Samstarfsverkefni 19. febrúar
Yfirfærsluverkefni 26. febrúar


Upplýsingar á vef ESB
 

 

hnappur_nsn.jpg

 

 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Afhending gæðaverðlauna Leonardo mannaskiptaverkefna fór fram í Graz í Austurríki 10. maí 2006

Þetta er í annað sinn sem verðlaun eru veitt fyrir mannaskiptaverkefni sem álitin eru standa framar öðrum er varðar framkvæmd, undirbúning, árangur og eftirfylgni.  Á undanförnum árum hefur verið lögð mikil áhersla á gæði mannaskiptaverkefna sem grundvöll fyrir góðum árangri áætlunarinnar.

Til úrslita voru valin 24 úrvals verkefni sem eru kynnt sem slík.   Verkefnin tilheyra fjórum flokkum mannaskiptaverkefna, fimm verkefni  í hverjum flokki. Lista yfir verkefni í úrslitum færðu með því að smella hér.

Eitt verkefni í hverjum flokki var verðlaunað sérstaklega og fékk afhent gæðaverðlaun hvers flokks. Verkefnin eru frá Belgíu, Tékklandi, Ungverjalandi og Eistlandi.  Athygli vekur að tvö verðlaunaverkefni eru fá Ungverjalandi. Nánari lýsingu á verðlaunaverkefnunum færðu með því að smella hér.

Nánari upplýsingar um verðlaunaafhendinguna og gæðaverðlaun Leonardó mannaskiptaverkefna færðu með því að smella hér.

Í tengslum við verðlaunaafhendinguna var núna ákveðið að velja einnig fulltrúa Leonardó mannaskiptaverkefna, svokallaða Ambassadors sem er fólk sem tekið hefur þátt í verkefnum og staðið sig sérstaklega vel.  Hverju landi gafst kostur á því að tilnefna fulltrúa og kom fyrsti vinningshafinn frá Belgíu, Anja Kaivers.  Tilgangurinn með þessari skemmtilegu nýbreytni er að leggja áherslu á og kynna þann fjölda fólks sem fær tækifæri til þess að kynnast starfi og námi í öðru landi með stuðningi Leonardó áætlunarinnar.

Fyrir árið 2005 voru  fjögur íslensk verkefni  tilnefnd til Evrópsku gæðaverðlaunanna

Verkefnin voru á vegum Verslunarskóla Íslands,  Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála,  Brunamálaskólans og Stúdentaferða.

Verkefni Verzlunarskóla Íslands sem tilnefnt var felst í því að senda nemendur til náms og  starfa í Madrid. Styrkþegar eru við nám í fjórar vikur í málaskólanum  ENFOREX í Madrid og ljúka þaðan prófum. Á meðan búa þeir á  heimilum og kynnast þar spænski heimilismenningu. Síðan vinna þeir í átta vikur sem aðstoðarmenn í  fyrirtækjum. Allt störf tengd námi  þeirra við Verzlunarskóla Íslands og þjálfast þannig bæði í spænsku, verslunarstörfum í öðru menningarumhverfi en sínu eigin og mannlegum  samskiptum. Þessi þriggja mánaða dvöl er metin til þriggja  eininga sem val til stúdentsprófs.
 

Verkefni Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála felast í því að meistaranemar í opinberri stjórnsýslu fara til aðildarlanda Evrópusambandsins til þriggja mánaða starfsþjálfunar hjá ráðuneytum eða stofnunum ríkis eða sveitarfélaga. Fimm nemendur hafa farið til Þýskalands, Írlands, Eistlands, Spánar og Búlgaríu. Á móti hafa komið hingað til samsvarandi starfsnáms sex nemendur frá Póllandi og Litháen. Munu þessi nemendaskipti halda áfram og vera mikilvægt tækifæri fyrir þá nemendur sem þess njóta.  Staðreyndin er sú að stjórnsýsla þjóðríkja verður æ tengdari alþjóðastofnunum, alþjóðlegum samtökum og skuldbindingum, auk þróunar alþjóðamála almennt.

Verkefni Brunamálaskólans felst í að senda stjórnendur úr slökkviliðum í námsferðir erlendis. Fræðslusjóður Brunamálastofnunar hefur einnig styrkt verkefnin þannig að kostnaðurinn fyrir slökkviliðin er eingöngu launakostnaður þátttakenda en ferðir, uppihald, aðgangur að æfingasvæðum og námskeiðsgjöld eru greidd með styrkjunum.
Markmið ferðanna er að gera stjórnendur í slökkviliðum að enn betri stjórnendum á vettvangi og góðum leiðbeinendum sem geta miðlað af sinni þekkingu og reynslu innan síns slökkviliðs, sett upp og stjórnað æfingum slökkviliða og kennt á námskeiðum Brunamálaskólans.

Dreifing þáttakenda um landið hefur verið mjög góð en á síðustu þremur árum hafa 70 stjórnendur frá 22 slökkviliðum farið í slíka námsferð. Þessar ferðir hafa heppnast ákaflega vel. Stjórnendurnir fá í ferðunum mikilvæga þekkingu og reynslu sem þeir geta miðlað af til sinna starfsmanna og þannig aukið öryggi almennings í landinu með aukinni fagmennsku í slökkviliðunum.

Verkefni Stúdentaferða, The European Work Experience, hefur það markmið að gefa ungu fólki kost á því að dvelja og starfa í öðru landi.  Á þann hátt kynnast þau menningu annara þjóða, auka tungumálakunnáttu  sína og koma til baka reynslunni ríkari.  Þátttakendurnir voru ungt fólk á aldrinum 18 – 24 ára.  Þau fóru til Englands, Ítalíu og Frakklands og dvöldu þar í 9 – 26 vikur.

samevrópsk gæðaviðurkenning

Samevrópsk gæðaviðurkenning fyrir Leonardo mannaskiptaverkefni

Í janúar 2005 var í   fyrsta sinn veitt  samevrópsk gæðaviðurkenning fyrir Leonardó mannaskiptaverkefni.  Þessi viðurkenning er veitt í framhaldi af  vinnu meðal Landsskrifstofa Leonardo þar sem niðurstaðan var sú að efna bæri til viðurkenningar af þessu tagi.

Fyrsta Leonardó gæðaviðurkenningin fyrir mannaskiptaverkefni var veitt í Austurríki árið 2001 og síðan hafa Spánn, Ungverjaland, Tékkland, Noregur og nú síðast við Íslendingar fylgt á eftir og staðið fyrir slíkum viðurkenningum í löndum sínum.

Samevrópska gæðaviðurkenningin var veitt á ráðstefnu í Osló og er upplýsingarnar um hana að finna á vefsíðu Landsskrifstofu Leonardó í Noregi, www.leonardodavinci.no  Í samkeppnina máttu 30 Evrópulönd senda inn 4 verkefni hvert og voru 20 verkefni valin til úrslita í 4 flokkum.

Tvö íslensk verkefni voru á meðal 20 verkefna í úrslitum og er það frábær árangur.  Þessi verkefni eru verkefni Iðntæknistofnunar og Skautafélags Reykjavíkur sem bæði hlutu íslenska gæðaviðurkenningu sem Fyrirmyndarverkefni í sínum flokkum haustið 2004.

Listi yfir verkefni í úrslitum fyrir evrópsku gæðaverðlaunin er hér.