Kaupmannahafnaryfirlýsingin
Á undanförnum árum hefur samstarf á sviði starfsmenntunar í Evrópu verið veigamikill þáttur við mótun evrópsks samfélags framtíðarinnar. „Kaupmannahafnaryfirlýsingin“ er yfirlýsing evrópskra ráðherra sem fara með starfsmenntamál og framkvæmdastjórnar ESB um aukið samstarf í Evrópu á sviði starfsmenntunar. Þessi yfirlýsing var gerð í Kaupmannahöfn 29. og 30. nóvember 2002 og er hana að finna hér fyrir neðan.
Á ráðherrafundi menntamálaráðherra Evrópusambandsins sem haldinn var í Maastricht 2004 var Kaupmannahafnaryfirlýsingin endurskoðuð og hafa nú verið gefin út drög að nýrri yfirlýsingu og er hana að finna hér fyrir neðan:
Á ráðherrafundi menntamálaráðherra Evrópusambandsins sem haldinn var í Helsinki 5. Desember 2006 var Kaupmannahafnaryfirlýsingin endurskoðuð og hafa nú verið gefin út drög að nýrri yfirlýsingu og er hana að finna hér fyrir neðan:
Á ráðherrafundi menntamálaráðherra Evrópusambandsins sem haldinn var í Bordeaux þann 26. nóvember 2008 var Kaupmannahafnaryfirlýsingin endurskoðuð. Hér fyrir neðan er hægt að skoða drög að henni.
Forgangsatriði
Kaupmannahafnaryfirlýsingin fjallar um aukið samstarf í Evrópu á svið starfsmenntunar og undirstrikar mikilvægi starfsmenntunar í að gera Evrópu að öflugasta þekkingarhagkerfi heimsins.
Forgangsatriði yfirlýsingarinnar lúta að málefnum þar sem evrópsk samvinna og sameiginlegar lausnir eru nauðsynlegar. Þau málefni eru:
- þarfir almennings og aðila í starfsmenntun
- þátttaka aðila vinnumarkaðarins
- sveigjanleiki og grasrótarsamstarf
Leonardó áætlunin tekur mið af þessum forgangsatriðum:
- Evrópusamstarfið ( European dimension)
- Gegnsæi, upplýsingar og leiðbeiningar
- Viðurkenning á færni og getu
- Trygging á gæðum






