Markmið nýrrar Menntaáætlunar Evrópusambandsins, The Lifelong Learning Programme, er að stuðla að þróun öflugs þekkingarsamfélags í Evrópu. Sérstök áhersla er lögð á samstarf og samnýtingu reynslu og þekkingar um menntun og þjálfun innan Evrópu.
Þróun starfsmenntunar er mikilvægur hluti þeirrar áætlunar Evrópusambandsins að það verði öflugasta þekkingarhagkerfi heims árið 2010 eins og kemur fram í stefnuyfirlýsingu leiðtoga sambandsins í Lisbon árið 2000. Helstu áherslur í þessari þróun eru að koma upp sameiginlegum ramma fyrir mat á getu og starfsfærni einstaklinga, innleiða aðferðir sem tryggja gegnsæi prófskírteina og hæfnisvottorða, auka hreyfanleika vinnuafls og skapa betri tækifæri til símenntunar.
Markmið
Markmið Leonardó áætlunarinnar sem styrkja þessar áherslur hafa verið sett til ársins 2013. Öll verkefni sem áætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri þessara markmiða. Þau eru:
- Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miðar að því að auka kunnáttu, og færni og efla persónulega hæfni þeirra.
- Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi.
- Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og starfsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nema í starfsþjálfun.
Formleg auglýsing eftir umsóknum árið 2010:
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú birt auglýsingu þar sem lýst er eftir umsóknum í Menntaáætlun Evrópusambandsins fyrir árið 2010: General Call for proposals 2009
Upplýsingar um verkefni, forgangsatriði og fjárhagshandbók eru á heimasíðu Menntaáætlunar Evrópusambandsins og á heimasíðu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, stjórnardeildar menntunar og menningar.
Athugið að í gögnum auglýsingarinnar er fjallað um allar undiráætlanir Menntaáætlunar Evrópusambandssins (Lifelong Learning Programme) og því þurfa umsækjendur Leonardó að einbeita sér að kaflanum um Leonardo.






