Til þess að geta sótt um styrki fyrir Leonardó verkefni er nauðsynlegt að hafa samstarfsaðila frá Evrópu. Í mannaskiptaverkefnum er aðeins gerð krafa um einn samstarfsaðila frá fullgildu Evrópusambandslandi. Í yfirfærsluverkefnum þurfa þátttakendur að vera frá þremur löndum hið minnsta, þarf af að minnsta kosti einu Evrópusambandslandi.
Undirbúningsstyrkir
Undirbúningsstyrkir (preparatory visits grants) eru styrkir sem þeir sem hafa áhuga á að undirbúa verkefni og verkefnaumsóknir geta sótt um til Landskrifstofu menntaáætlunar ESB.
Nánar...
Tengslaráðstefnur
Það er mjög góð reynsla af þátttöku í tengslaráðstefnum sem hafa það markmið að leiða saman fólk sem áhuga hefur fyrir þátttöku í Leonardo verkefnum. Það myndast tengsl milli fólks og oft eru þróaðar verkefnahugmyndir á slíkum ráðstefnum. Þetta er einnig góð leið fyrir þá sem hafa hugmynd og þurfa að finna samstarfsaðila. Upplýsingar um tengslaráðstefnur á döfinni birtast á síðunni Tengslaráðstefnur um leið og þær berast.
Evrópskar stofnanir í leit að samstarfsaðilum láta vita
Reglulega berast Landsskrifstofunni erindi frá aðilum sem eru að leita eftir íslenskum samstarfsaðilum. Þessum erindum safnar starfsfólk Leonardó saman þannig að gott er að hafa samband við starfsfólk í því sambandi.
Aðstoð frá Landskrifstofu
Starfsfólk Landsskrifstofunnar getur í mörgum tilfellum aðstoðað við leit að samstarfsaðilum í gegn um eigin tengslanet. Hafið samband við Andrés Pétursson verkefnisstjóra vegna yfirfærslu- og þróunarverkefna og Margréti Jóhannsdóttur eða Ástu Vigdís Jónsdóttur vegna mannaskiptaverkefna.
Leitarvefir
- Aðgengilegur leitarvefur á vegum pólsku Landskrifstofunnar.
- Tyrkneskur leitarvefur fyrir samstarfsaðila til að taka þátt í verkefnum sem falla undir Menntaáætlun ESB og Youth in Action.







