Adam gagnabankinn
ADAM er gagnabanki sem ætlað er að miðla verkefnum og afurðum innan Leonardó hluta Menntaáætlunar ESB.
Sífellt koma fram á sjónarsviðið nýjar afurðir Leonardó verkefna sem eru sérsniðnar að kröfum starfsmenntunar í skólum og fyrirtækjum.
Með því að nýta þér ADAM - gagnagrunninn geturðu aflað þér upplýsinga um afurðir Leonardó verkefna. Til þess eru tvær leiðir: Annað hvort slærðu inn leitarorð inn í reitinn "Search for Projects and Products" og þá færðu upplýsingar úr gagnagrunninum um þau verkefni sem samsvara leitarorðum þínum eða þú getur gert ítarlegri leit með því að smella á "Extended Search".
Ert þú verkefnisstjóri Leonardó verkefnis og vilt gera afurðir verkefnis þíns aðgengilegar almenningin? Skráðu þá verkefnið þitt í ADAM gagnagrunninn.
Heimasíða gagnabankans er: www.adam-europe.eu
EST Gagnabankinn
EST, European Shared Treasure, er gagnabanki fyrir Comenius, Leonardo og Grundtvig samstarfsverkefni. Honum er ætlað að auka sýnileika verkefna og bæta aðgengi að upplýsingum um afurðir verkefna.
Á slóðinni fyrir neðan er hægt að leita eftir verkefnum:






