Fyrirmyndarverkefni
Hér eru tenglar sem vísa á bæklinga um Grundtvig fyrirmyndarverkefni.
- 2009 Grundtvig Success Stories, á ensku (.pdf, 388 kb)
- 2008 Grundtvig Success Stories, á ensku (.pdf, 2,22 mb)
- 2007 Grundtvig Success Stories, á ensku (.pdf, 657 kb)
Fyrirmyndarverkefni 2008-2010
Sjálfsbjörg
Markmiðið var að kanna og þróa námsleiðir og skoða tækifæri fatlaðs fólks og eldra fólks til að afla sér tölvuþekkingar með hjálp yngri kynslóða. Yngri kynslóðir kynntu sér líf þeirra eldri og á sama tíma kenndu þeir eldri kynslóðinni tölvulæsi. Búin var til fjölskyldusaga, með texta, myndum og stuttum myndbandsbrotum sem var sett inn á blogg sem verkefnið setti upp. Niðurstaða verkefnis reyndist sú að hinir eldri lærðu á tölvur með aðstoð yngri kynslóðarinnar og unga fólkið lærði um sögu sína og menningu af frásögnum og viðtölum við eldri kynslóðina.
Intercultural Iceland
Vikulangar vinnustofur voru haldnar fyrir nemendur í fullorðinsfræðslu til að leiða saman fullorðna nemendur víða að frá Evrópu. Þátttakendur hér á landi voru þrettán talsins. Fjölbreytileiki réð vali á þátttakendum hvað varðar aldur, menntun, starfsvettvang og búsetu. Þannig var yngsti þátttakandinn 19 ára og sá elsti 67 ára. Það sem þátttakendur áttu sameiginlegt var áhugi á að bæta fjölmenningarlega færni og enskunám. Vinnustofan gekk afar vel, verkefnavinnu var vel tekið og var munurinn á sjálfstrausti, samskiptum og samvinnu svo augljós að þessum fimm dögum liðnum að enginn vafi lék á árangrinum. Nemendur gáfu þessu námskeiði fullt hús stiga þegar þeir sendu inn þátttökuskýrslur.
Þjónustumiðstöð blindra og sjónskertra
Verkefnið skoðaði menntun og atvnnumöguleika blindra og sjónskertra einstaklinga með viðbótarfatlanir. Þátttakendur í samstarfinu voru fagfólk nemendur og foreldrar sem tengjast menntun og endurhæfingu blindra og sjónskertra einstaklinga á aldrinum 16-25 ára. Samstarfið þróaði leiðir til að brúa bilið milli framhaldsskóla og atvinnulífs, og símenntunar og atvinnulífs.
Þátttökulönd: Danmörk, Finnland, Írland, Ítalía, Spánn, Svíþjóð, Tékkland og Þýskaland.
Fyrirmyndarverkefni 2009-2011
Intercultural Iceland: Skapandi fjölbreytileiki - Skapandi aðferðir á fjölmenningarlegum námskeiðum
Upphafleg hugmynd verkefnisins var að safna saman fjölbreyttum hóp evrópskra stofnanna/einstaklinga með ólíkan menningarlegan og faglegan bakgrunn. Tilgangurinn var að vinna saman að skapandi nálgun við fjölmenningarlega kennslu eða þjálfun en aðferðirnar munu einkennast af því að vera skapandi, höfða til upplifana og reynslu þátttakenda og vera næmar á mismunandi aðstæður. Markmið þessa þverfaglega hóps er að þróa nýstárlega hugmynd um hvernig auka megi meðvitund fólks um þau einstaklingsbundnu- og samfélagslegu ferli sem leiða til útilokunar og mismununar og um leið kynna sérstakar aðferðir sem leiða til vitundarvakningar um kosti fjölbreytileikans fyrir samfélagið í heild.


