TENGSLARÁÐSTEFNAN
Gæðakerfi í starfsmenntun er þema tengslaráðstefnu sem haldin verður í Finnlandi 8. – 10. júní. Yfirskrift ráðstefnunnar er Tools for Quality Assurance in Vocational Education and Training og er um að ræða samstarfsverkefni Landskrifstofa Leonardo hluta Menntaáætlunar ESB á Norðurlöndunum og Írlandi. Til ráðstefnunnar er boðið fulltrúum allra þátttökulanda Menntaáætlunar Evrópusambandsins og er markmiðið að mynda tengsl fyrir Leonardo yfirfærslu-, samstarfs- og mannaskiptaverkefni.
Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á umfjöllun um samevrópsk gæðakerfi í starfsmenntun, Framework for Quality Assurance in VET – EQAVET. Markhópurinn eru starfsmenntakennarar, náms- og starfsráðgjafar, símenntunarmiðstöðvar, fræðslustjórar fyrirtækja, verkefnastjórar, gæðastjórar og skólameistarar.
Áhugasamir eru hvattir til þátttöku. Ráðstefnugjaldið er 400 evrur og innifelur það gistingu, máltíðir og þátttöku í dagskrá ráðstefnunnar. Skráning þátttöku er beint til Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB á Íslandi, Leonardo áætlunarinnar, fyrir 12. maí.
Skáningarformið (Pre-registration and Profile form).
Upplýsingar um ráðstefnuna – fylgiskjöl:
Boðsbréf - Invitation
Almennar upplýsingar - Practical information
Dagskrá – Programme
Mögulegt er að sækja um undirbúningsstyrk fyrir þátttöku í ráðstefnunni. Upplýsingar um undirbúningsstyrk eru á www.lme.is/page/LeonardoUndirbuningsstyrkir
Upplýsingar fyrir umsókn undirbúningsheimsóknar – PV grant information
NÁMSKEIÐ FYRIR VERKEFNISSTJÓRA YFIRFÆRSLUVERKEFNA
Í framhaldi af tengslaráðstefnunni 10. - 11. júní verður haldið námskeið fyrir verkefnastjóra yfirfærsluverkefna, Training programme for peers. Þetta er mjög spennandi námskeið sem skipulagt er af finnsku Landskrifstofunni og finnsku Náms- og stefnumótunarstofnuninni - National Board of Education. Þátttökugjaldið fyrir námskeiðið er 320 evrur og er þá gisting og matur innifalið. Skráning á námskeiðið er rafræn og frestur til að skrá sig er til 30.april. Skráningarformið er rafrænt og slóðin er þessi:
https://www.webropol.com/P.aspx?id=420754&cid=85681671
Upplýsingar um námskeiðið – fylgiskjöl:
Boðsbréf – Invitation
Almennar upplýsingar – Practical information
Dagskrá – Programme
Upplýsingar um námskeiðið eru á:
http://www.cimo.fi/Resource.phx/cimo/elinikainen-oppiminen/leonardo-da-vinci/tilaisuudet2010/vertaisarviointikoulutus10-110610.htx






