hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins


 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Kaupmannahafnaryfirlýsingin

Á undanförnum árum hefur samstarf á sviði starfsmenntunar í Evrópu verið veigamikill þáttur við mótun evrópsks samfélags framtíðarinnar. „Kaupmannahafnaryfirlýsingin“ er yfirlýsing evrópskra ráðherra sem fara með starfsmenntamál og framkvæmdastjórnar ESB um aukið samstarf í Evrópu á sviði starfsmenntunar. Þessi yfirlýsing var gerð  í Kaupmannahöfn 29. og 30. nóvember 2002 og er hana að finna hér fyrir neðan.

Kaupmannahafnaryfirlýsingin 2002, á ensku (.pdf 100 K) Sækja skjal
Kaupmannahafnaryfirlýsingin 2002, á íslensku (.doc 30 K) Sækja skjal

Á ráðherrafundi menntamálaráðherra Evrópusambandsins sem haldinn var í Maastricht 2004 var Kaupmannahafnaryfirlýsingin endurskoðuð og hafa nú verið gefin út drög að nýrri yfirlýsingu og er hana að finna hér fyrir neðan:

Maastrichtyfirlýsingin 2004, á ensku (.doc 122 K) Sækja skjal

Á ráðherrafundi menntamálaráðherra Evrópusambandsins sem haldinn var í Helsinki 5. Desember 2006 var Kaupmannahafnaryfirlýsingin endurskoðuð og hafa nú verið gefin út drög að nýrri yfirlýsingu og er hana að finna hér fyrir neðan:

Helsinkiyfirlýsingin 2006, á ensku (.pdf 135 K) Sækja skjal

Á ráðherrafundi menntamálaráðherra Evrópusambandsins sem haldinn var í Bordeaux þann 26. nóvember 2008 var Kaupmannahafnaryfirlýsingin endurskoðuð. Hér fyrir neðan er hægt að skoða drög að henni.

Bordeauxyfirlýsingin á ensku (.pdf 6589 K) Sækja skjal

 

Forgangsatriði

Kaupmannahafnaryfirlýsingin fjallar um aukið samstarf í Evrópu á svið starfsmenntunar og undirstrikar mikilvægi starfsmenntunar í að gera Evrópu að öflugasta þekkingarhagkerfi heimsins. 

Forgangsatriði yfirlýsingarinnar lúta að málefnum þar sem evrópsk samvinna og sameiginlegar lausnir eru nauðsynlegar. Þau málefni eru:

  • þarfir almennings og aðila í starfsmenntun
  • þátttaka aðila vinnumarkaðarins
  • sveigjanleiki og grasrótarsamstarf

Leonardó áætlunin tekur mið af þessum forgangsatriðum:

  • Evrópusamstarfið ( European dimension)
  • Gegnsæi, upplýsingar og leiðbeiningar
  • Viðurkenning á færni og getu
  • Trygging á gæðum