Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Leonardo - starfsmenntun

Öll verkefni sem Leonardo áætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri þessara markmiða:

  1. Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miðar að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra
  2. Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi
  3. Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og starfsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun


 

Fréttir og tilkynningar

Miðvikudaginn 16. maí kl. 14:00 verður haldinn fundur með verkefnisstjórum, þar sem farið verður yfir helstu atriði varðandi stjórnun mannaskiptaverkefna. ´Tilbúnir smaningar verða þá einnig afhentir. Við hvetjum verkefnisstjóra eindregið til að koma á fundinn og vera þá búnir að skila inn gögnum svo hægt verði að afhenda samninga. Vinsamlegast skráið þátttöku á fundinn til fanneyr@hi.is

Breska landskrifstofan hefur auglýst tengslaráðstefnu sem haldin verður í Birgmingham 4.-7. júlí. Heiti ráðstefnunar er Back to learning: Back to work. Tengslaráðstefnan er ætluð þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í Leonardo eða Grundtvig samstarfsverkefnum

New Skills Network er 15 landa samstarfsnet landskrifstofa Leonardo starfsmenntaáætlunarinnar.  Markmið verkefnisins er að vinna í anda stefnumörkunar Evrópusambandsins „New Skills for New Jobs“ sem ætlað er að stemma stigu við síauknu misræmi í færni fólks á vinnumarkaði.  New Skills Network verkefnið leitar því leiða til að brúa bilið milli menntunar og vinnumarkaðar.

Nú eru liðnir umsóknarfrestir Leonardo verkefna en þeir voru í febrúar. Mikill áhugi var meðal umsækjenda og alls bárust 7 umsóknir um yfirfærsluverkefni,  21 umsókn um samstarfsverkefni og 36 umsóknir um mannaskiptaverkefni.

Síðast liðið vor fékk Listaháskólinn úthlutað liðlega tuttugu þúsund evrum til mannaskiptaverkefnisins „Moving skills in Art and Design“. Þetta er fjórða mannaskiptaverkefni Listaháskólans en skólinn hefur frá árinu 2007 veitt hátt í þrjátíu nemendum skólans styrk til starfsþjálfunar að lokinni útskrift.

Auglýst er eftir matsmönnum til að meta umsóknir í; LEONARDO, starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins, COMENIUS, evrópsku skólasamstarfi og GRUNDTVIG, evrópsku samstarfi um fullorðinsfræðslu.

Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda rafrænt á netfangið: lme@hi.is í síðasta lagi 15. febrúar n.k.