Leonardo - starfsmenntun
Öll verkefni sem Leonardo áætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri þessara markmiða:
- Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miðar að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra
- Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi
- Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og starfsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun
Fréttir og tilkynningar
Námskeiðin verða haldin í Námu, sal Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7 en einnig verða þau send út með fjarfundabúnaði og aðgengileg á nokkrum símenntunarmiðstöðvum á landsbyggðinni. Þátttakendur af landsbyggðinni geta nálgast gögn hér á bakvið.
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.
Í stað hefðbundins ársfundar mun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB halda ráðstefnu undir heitinu „Úrræði til árangurs“ á Hótel Hilton Nordica dagana 26. og 27. nóvember.
Dagana 27. – 30. september síðastliðinn var haldin tengslaráðstefna í Dublin á Írlandi. Fulltrúar frjálsra félaga, stofnana og skóla frá ýmsum löndum komu þar saman til að leita samstarfsaðila.
CEDEFOP, Starfsmenntastofnun Evrópu, hefur gefið út bækling með úrvali dæma um það sem gert er í starfsmenntamálum í Evrópu.
Íslenska, norska og danska landskrifstofan í samvinnu við baltnesku löndin og Norðurlönd standa fyrir tengslaráðstefnu mannaskipta- og samstarfsverkefna Leonardó þann 22. – 24. október í Reykjavík.





